Tímanna safn. Kjörgripabók
8.900,- / 7.120,-
Tímanna safn. Kjörgripabók
Fjallað er í máli og myndum um kjörgripi sem varðveittir eru í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Þeir endurspegla fjölbreytta safneign og er t.a.m. fjallað um bækur, handrit, einkaskjöl, tímarit og hljómplötur. Bókin er gefin út í tilefni af 30 ára afmæli Þjóðarbókhlöðu en 1994 sameinuðust Landsbókasafn og Háskólabókasafn undir einu þaki.
Safnið á sér þó sögu sem nær aftur til ársins 1818 þegar Landsbókasafn, sem í fyrstu hét Stiftsbókasafn, var stofnað. Á þessum ríflega 200 árum hefur safnkosturinn vaxið og starfsemin tekið breytingum.Með bókinni er ætlunin að varpa ljósi á fjölbreytni safnkostsins. Í henni er vakin athygli á efni sem lítið hefur verið fjallað um áður, í bland við þekktari gersemar í safnkostinum. Birtar eru ljósmyndir af hverjum kjörgrip ásamt texta þar sem gerð er grein fyrir honum. Höfundar texta eru bæði núverandi og fyrrverandi starfsmenn safnsins.
Tímanna safn. Kjörgripabók
Vegna sumarleyfa verða pantanir í vefverslun ekki afgreiddar frá 29. maí til 15. júní. Pantanir sem berast á tímabilinu verða afgreiddar eftir að skrifstofan opnar aftur.
Due to summer holidays, orders placed in the online store will not be processed from 29 May to 15 June. Orders received during this period will be processed after the office reopens.
Loka