7.250,- / 5.800,-
Lýðveldisbörnin
Ritstjórar: Þór Jakobsson og Arna Björk Stefánsdóttir
Undanfarin ár hafa Þór Jakobsson veðurfræðingur og Arna Björk Stefánsdóttir sagnfræðingur safnað minningum lýðveldisbarna um 17. júní 1944 en svo eru kallaðir núlifandi Íslendingar sem voru á Þingvöllum við stofnun lýðveldisins eða upplifðu hinn söguríka dag annarsstaðar á landinu. Bókin er fágæt og skemmtileg heimild um reynslu og viðhorf unga fólksins á þessum merka degi þegar þjóðin fagnaði fengnu frelsi við endalok hartnær sjö alda skeiðs erlendra yfirráða.