3.990,- / 3.192,-
Kirkjur Íslands 23. Skaftafellsprófastsdæmi
Ýmsir
Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Kirkjur Íslands eru vandaðar og glæsilegar bækur sem opna sýn inn í mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu. Til útgáfunnar var stofnað í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi. Áætlað er að bókaflokkurinn verði 29 bindi og útgáfunni ljúki 2018.
Í þessu bindi er fjallað um friðaðar kirkjur í Skaftafellsprófastsdæmi. Ritið prýðir fjöldi ljósmynda, sem Ívar Brynjólfsson ljósmyndari Þjóðminjasafns hefur tekið, og teikningum af kirkjunum.
Að útgáfunni standa Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og Biskupsstofa. Meðútgefandi og dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.