Skilmálar vefverslunar

Verð á heimasíðu er birt með fyrirvara um villur. Hið íslenska bókmenntafélag áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna mistaka við verðlagningu eða ef vara reynist uppseld.

Afhending og afgreiðslutími

Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og hægt er. Vara er ekki send fyrr en greiðsla hefur borist. Pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Hið íslenska bókmenntafélag ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send úr vefverslun Hins íslenska bókmenntafélags og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilað og skipt

Vara fæst ekki endurgreidd en hægt er að skila henni eða skipta í verslun okkar við Hagatorg, að því gefnu að hún sé óskemmd. Kvittun fyrir kaupunum þarf að fylgja með. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Verð

Athugið að verð á heimasíðunni getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.